06desember

Já sæll!! þurfum við að ræða það eitthvað eða??

Síðasta helgi var ein af þeim betri verð ég að segja..
Ég og Arnór kíktum í heimsókn til Ívars í Engelsholm og hittum hann Sigrúnu og Kristján, herbergisfélaga Ívars. Létum fara vel um okkur, náðum í bjór og svo undirbjuggum við búningana okkar, þar sem það var Space þema klæddum við okkur í málningargalla sem við spreyjuðum silfraða, og svo var Arnór með hanakamb upp úr hettunni og ég með áltyppi út um rennilásinn. Þessir búningar vöktu miiikla lukku því allir aðrir í partýinu voru kannski bara með smá álpappír utan um hendurnar eða álpappírshúfu eða slíkt..

Það voru nokkrar góðar myndir teknar en Pulsi hefur einungis getað útvegað eina og sú var ekki jafn góð og aðrar sem ég veit að voru teknar, svo vonandi kemst ég yfir eitthvað sjóðheitt og þá set ég það hingað inn svo þið verðið að fylgjast vel með.!
Á laugardeginum fórum við svo til Kolding, keyptum mat og bjór og Sigrún og Ívar elduðu fyrir okkur dýrindis máltíð, svo sátum við bara og áttum huggulegt kvöld með bjór, hvítum rússa og Ouzo áður en við fórum í bæinn um hálf 1 leytið. Skelltum okkur á fínan stað og áttum ágætis tíma þar áður en við fórum heim.
Daginn eftir sváfum við langt fram yfir hádegi.. keyptum svo mat sem Ívar og Sigrún elduðu aftur og Sigrún eldaði súkkulaðiköku.. matsins og félagsskapsins nutum við í botn áður en við héldum til okkar heima síðdegis. Takk fyrir okkur Ívar og Sigrún :)

Á morgun er svo julefrokost hér í skólanum sem endar klárlega með djammi enda næst-síðasta helgin og nóg áfengi til. Ætlunin er að drekka hvítan rússa og stúta þar með vodkanum mínum, en svo er einnig nóg af Jagermeister og Gini til, því verður vonandi stútað fyrir brottför heim.

Á laugardag stefnum við Arnór svo til Århus að kaupa jólagjafir og að sjálfsögðu kíkjum við í bæinn að því loknu.. Verðum líklega bara tveir þar sem Coalstraight er að læra alla helgina, spurning með Dagsson...

annars bið ég að heilsa í bili og vonandi koma myndir frá space festinu í Engelsholm sem ég get sett hér inni... fylgist með því!
06. desember 2007 klukkan 15:37
Guðmundur Jónsson
3 athugasemdir
28nóvember

Update.

Krabbes heilsar á ný!
Miðvikudagurinn 28.nóvember sem þýðir akkurat 3 vikur í að ég fljúgi heim á leið. Stefnan er tekin á að keyra austur daginn eftir með Daníeli nokkrum Erni og við höfðum hugsað okkur að vera í samfloti með Garðari & Jökli annars vegar og Böðvari & Bergþóri hinsvegar. Það verður skemmtilegt ferðalag býst ég við.
Svo kemur maður beint heim í jólastemninguna, ferskar jólakökur úr ofninum enda mamma og Hrefna búnar að vera að baka á fullu í einhverja 9 daga, bara fyrir mig.
Það verður pottþétt eitthvað algert hnossgæti á boðstólum.

Kaupmannahafnarhelgin var afar ljúf. Ég hitti fjölskylduna á flugvellinum og eftir góða máltíð hittum við Beggu og fjölskyldu og það var bara legið í rólegheitum og spjallað. Daginn eftir var verslunarleiðangur og áður en við fórum öllsömul í Tívolí, sýndi Gulla frænka okkur lýðháskólann sinn. Seinna fór ég svo niður í Nörrebro, hitti Ívar, Sigrúnu, Björt og Jeppe og við skelltum okkur á Vega. Fínt kvöld, þó maður hafi verið einn með tveim pörum. Ívar api hegðaði sér eftir því og dansaði á borðum og hékk í loftum og fékk að lokum skammir fyrir. Apinn hló þó bara að því, “hvað, er þetta ekki skemmtistaður? ég er bara að skemmta mér” sagði hann skælbrosandi og klifraði upp í loft að nýju. Þegar við komum heim var Ívar eins og alltaf góði kærastinn, en í þetta skiptið var hann blindfulli góði kærastinn og lofaði Sigrúnu að við kæmum með henni í bæinn kl.11 næsta morgun.
Hún tók hann á orðinu og ræsti okkur á mínútunni 11. ☺
Laugardeginum var eytt í rölt og búðir og að lokum sagði ég skilið við skötuhjúin og fór með fjölskyldunni á veitingastað og svo upp á hótel þar sem ég slakaði á, ferskti mig upp og fór aftur með pörunum tveim í bæinn.
Á sunnudaginn borðaði ég með fjölskyldunni og Gullu og svo pökkuðum við og slöppuðum af. Á mánudagsmorgun fóru þau svo aftur til Íslands og ég tók lestina til Skive.

Daginn eftir keyrði ég svo ásamt Uffe, Símoni og Chano til Århus á biluðum bíl Uffe og við náðum á lestarstöðina 2 mín fyrir brottför til Köben. Það kvöld fórum við á nokkra pöbba og drukkum bjór og gistum svo hjá systur Rasmusar. Á miðvikudeginum fórum við svo á völlinn. Fengum fyrst sæti beint fyrir aftan annað markið en höfðum pantað neðarlega í Carlsberg stúkunni og fengum miðunum breytt. Við fengum þó ekki réttu sætin heldur vorum við nokkuð ofarlega en höfðum því bara betri yfirsýn. Við höfðum útbúið borða en hann var tekinn niður eftir einungis 11 mínútur. Leikurinn fór ekki vel, frekar en við var að búast en þetta var fínt engu að síður.

Næstu helgi ætlum við Arnór svo að kíkja til Ívars og Sigrúnar. Teiti í skólanum hans Ívars á föstudag og stefnan er svo tekin á lífið í Kolding á laugardagskvöld.
Helgina eftir það ætlum við Arnór svo til Århus að kaupa jólagjafir og fleira og síðasta helgin verður svo sennilega 4 daga djamm í Krabbesholm, þar sem lokapartýið er á mánudegi.


Þetta er frá því sjónarhorni þar sem við sátum fyrst, beint fyrir aftan Danska markið, Íslendingarnir sjást þarna hinu megin á vellinum.


1mynd

Síðan vorum við færðir þangað, mjög gott sjónarhorn þó við hefðum verið til í að vera nær vellinum.


2mynd

Símon og Uffe keikir í byrjun leiks.


3mynd

Léleg mynd (zoom á símamyndavél) af því þegar verðirnir voru að taka niður borðann okkar. Hann var 7 metra langur með endalaust mörgum litlum böndum svo það tók nokkrar mínútur.


4mynd
28. nóvember 2007 klukkan 15:52
Guðmundur Jónsson
13 athugasemdir
14nóvember

Hva så?

Úr Krabbesholm berast góðir straumar og fréttir. Nemendur skólans hafa róast afar mikið í drykkju og partýhöldum enda er farið að teljast til tíðinda séu allir nemendur skólans staddir á skólasvæðinu um helgar. Það gerist einungis þegar eitthvað stórt er að gerast og ástæða til að halda kyrru fyrir.
Síðustu helgi vorum við svo fá að í stað þess að fá 1 eldhúsvakt fengu allir 2. Það var frábært. Við vorum í kringum 20 manns yfir helgina en við létum það ekki á okkur fá.

Á föstudagskvöld sátu 7 drengir að drykkju í einu af vistarhúsunum hér og spiluðu drykkjuleik. Það þreyttist fljótt og upp kom hugmynd.
Allir fengu eitt spil. Áður en litið var á spilin sagði hver og einn hvað gert skyldi um kvöldið. Saklausar hugmyndir eins og Keila eða Pool í Skive heyrðust en einhverjir voru metnaðarfyllri, Århus heyrðist nokkrum sinnum en auk þess Silkeborg og Berlín. Spilin voru sýnd. Århus uppástunga Nicolai og Pooluppástunga Símons fengu ása. Þeir fengu spil að nýju.
Århus vann.
Ekki voru allir til í þessa ferð svo gefið var aftur. Nicolai með Århus sigraði á ný. Nú var enginn vafi. Okkur var ætlað að fara til Århus þetta kvöld.
Taxi var pantaður, bjór var safnað en 2 urðu eftir. Hins vegar slógust 3 stelpur í hópinn. Þær fóru á undan í leigubíl, við komum skömu síðar.

Enginn átti miða, tími gafst ekki til kaupa á slíku. 8 manns sátu um borð í lestinni milli Århus og Skive miðalaus, hefðum við verið gripin hefði lestarfyrirtækið grætt á okkur 4800 danskar krónur eða 57.000 íslenskar.

Eftir góðan tíma í Århus tók ég morgunlest frá Århus til Skive kl.6.30 ásamt Norðmönnum 2. Heimkoma var kl.8 og hún var góð eftir fína ferð til Århus.

Næsta helgi verður ljúf. Á fimmtudag er för heitið til Köben. Þar hitti ég alla fjölskylduna mína sem verður í Köben yfir helgina. Svo var ætlunin að kíkja á Mugison ásamt Ívari, Sigrúnu og Hrefnu en honum var aflýst og í stað han kom Eivör, því nenni ég ekki. Ferðinni lýkur á miðvikudaginn næsta þegar ég fer með Rasmusi Uffe og Símoni á Danmörk-Ísland. Vonandi verða úrslitin okkur hagstæð, það myndi tryggja ljúfa heimferð daginn eftir.
14. nóvember 2007 klukkan 14:12
Guðmundur Jónsson
5 athugasemdir
06nóvember

Snilldarhelgi að baki

Síðasta helgi var þannig að á föstudag var hrekkjavökuþema á föstudagsbarnum hér... það var nett stemning svona, aðallega samt á meðan dj-arnir frá Seyðisfirði voru við stjórnvölinn ;)

halloween
mynd: jólasveinarnir 3 ásamt charlies angel

við fórum samt ekkert voða seint í háttinn þar sem barinn lokaði á miðnætti og einhverra hluta vegna var stofunni læst! auk þess var stefnan að fara til Århus fyrr en seinna.. ætluðum að taka lestina um 10 en ákváðum að fresta ferðinni um klukkutíma vegna heilsuleysis...

Það heilsuleysi stoppaði okkur þó ekki í að hlaupa með 5 kassa af ölflöskum í Kvickly og spretta svo upp á lestarstöð. Þegar við komum til Århus hittum við þunnan Dagsson og þegar fyrsti bjórinn var keyptur yfir Arsenal-ManUtd á pöbbnum Sherlock Holmes kom í ljós hversu illa staddir þeir frændur voru miðað við mig, amk þennan laugardag, Símon fékk sér kókglas og þegar hann fékk sér sinn fyrsta öl var ég búinn með minn og Ívar hálfnaður með sinn. Við sötruðum yfir leiknum og vorum raunar enn að sötra þegar út brutust gríðarmikil slagsmál á Sherlock... Bullur AGF höfðu þá ráðist að stuðningsmönnum FCK sem voru margir á þessum stað. Áður en við vissum af flugu borð, stólar, glös flöskur og annað tiltækt en við vorum nógu innarlega til að sleppa við þetta, sátum því bara rólegir og drukkum mjöð okkar.

Skelltum okkur eftir þetta á annan stað til að horfa á fleiri leiki, og bíða eftir Coalstraight. Hann birtist loks en einnig höfðu bæst við tveir Norðmenn. Við létum okkur hverfa þegar farið var að kvölda eftir að ég hafði sofnað yfir leik Blackburn og Liverpool, sem þarf ekki að koma á óvart. Fengum okkur pizzu heima hjá Jóni og sötruðum meir. Ákváðum svo að halda til bæjarkjarnans þegar þreytan var alveg að ná tökum á okkur.. tvöfaldur Jagermeister í orkudrykk reyndist vera töfrabragð sem verkaði vel á mig. Við komum okkur svo heim um 5 leytið örmagna eftir stíft prógramm..
Sunnudagurinn var vitanlega þunnur, slappur og þreyttur. Fengum okkur fjári góða flatböku á Mackie´s og héldum svo heim á leið til Skive.

Góð helgi að baki og þakka ég öllum sem komu að henni, þó ekki Böðvari og Hákoni sem einhverra hluta vegna svöruðu ekki símtölum okkar félaganna um miðja laugardagsnótt..
06. nóvember 2007 klukkan 23:14
Guðmundur Jónsson
4 athugasemdir
02nóvember

Århus it is!

Eftir langa umhugsun og erfiða fæðingu ákvarðanatökunnar var loks ákveðið að velja Århus. Hins vegar förum við í fyrramálið og í kvöld er hrekkjavökuþema á föstudagsbarnum, við monsi erum hins vegar svo slakir að við höfum enga búninga fundið :( allavega ekki sem við vorum sáttir með svo við erum nokkuð venjulegir í klæðum. Símon þó með derhúfu og driver gleraugu svo hann getur verið driver og ég með cameru svo ég segi bara að ég sé photographer.

Annars erum við að dj-ast frá 9 til 10 líkt og síðast. Ekki alveg jafnmikið af íslenskri músík og síðast (þá var einungis íslensk) en auðvitað koma íslenskir hittarar! :)

en það er svo århus þar sem fótboltinn og bjór verður í fyrirrúmi frá hálf 2, byrjum á stórleik man utd og arsenal, þá tekur við liverpool leikur (århus mennirnir báðir púllarar) og að lokum stórleikur AGF og FCK. Jafnvel spurning hvort við förum ekki á völlinn. Svo er það bara bærinn um kvöldið.

en ég segi þetta bara fínt

í tilefni boltadags á morgun er hér mynd af okkur símoni ásamt birni ben frá glæsilegum 4-1 sigurleik 06.apríl á BN´96 frá í sumar.

gummi og símon
02. nóvember 2007 klukkan 19:22
Guðmundur Jónsson
2 athugasemdir
29október

Engelsholm v. Århus næstu helgi...

Spurningin sem ég og Símon veltum fyrir okkur þessa vikuna, hvort það sé Engelsholm eða Århus næstu helgi... Báðir snilldarkostir með snillingum og án efa stuði...

En ætli það fari ekki töluvert eftir því hversu mikið teiti verður í Engelsholm þessa helgina..

það er bara stutt í dag :) kveð með mynd af Perezi síðan í Þýskalandi

Símon hjólamódel
29. október 2007 klukkan 12:26
Guðmundur Jónsson
6 athugasemdir
28október

fyrsta færslan.

Þá hefst tilraunin.

Spurning hvernig fer?

Ég reyni að blogga nokkuð reglulega. Jafnvel henda inn einhverjum myndum með.

Þessi helgi bara búin að vera hrein snilld. Ívar P kom á föstudagskvöldið. Ég tók auðvitað á móti honum með einn ííískaldan enda klukkan orðin 8 og ekki seinna vænna en að hefja inntöku mjaðarins, sem rann augljóslega afbragðsvel niður á leiðinni heim.
Við komuna í skólann jókst drykkjan og létt partý voru haldin víðsvegar í húsakynnum nemenda. Í bæinn var haldið síðla kvölds, en þó einungis í þeim gagngerða tilgangi að útvega okkur næringu. Pizza var keypt og leigari tekinn heim. Þar héldum við áfram, þó ekki lengi enda einungis upphitunarkvöld um að ræða.

Laugardagurinn var ekki mjög þunnur, þó aðeins. Við aðhöfðumst ekki mikið, fórum þó í bæinn annars vegar til að borða hins vegar til að bæta aðeins í bjórkassann.

Þegar til baka var komið var þreytan farin að láta kræla á sér en við hófum þegar gagnárásir þegar boðið var upp á freyðivín áður en haldið var í sýningartúr um skólann. Jón Kolbeinn kom eins og kallaður í þá víndrykkjuna.
Að túrnum yfirstöðnum var ferskleikastuðull rotinna mannanna hækkaður með sturtu og drengirnir klæddir í skyrtur og haldið til Símons oft kenndan við Perez. Hjá honum hittum við einnig Björt og Jeppe og fljótlega héldum við til borðhalds.
Boðið var upp á dýrindis kjúkling og pasta auk eftirréttar sem fengi Böðvar til að urra af girnd.

Að matnum loknum hélt drykkja mjaðar áfram með ögn meiri ákafa og geði var blandað. Áður en haldið var til teitis háðu fjórir gríðarvelútlítandi menn keppni í borðfótbolta þar sem tveir leikir voru teknir en úrslit þeirra verða ekki kunngerð hér.

Að síðustu var litið upp í kytru Guðmunds þar sem Jón og Jeppe fengu að kynnast híbýlum hans.

Þar var Brennivínspelinn gripinn með, og ekki þarf að fjölyrða um afleiðingar þess.

Ekki voru margir mættir í teiti svo við gerðum okkur glaðan dag með því að heimsækja 2 partý með því markmiði að splundra þeim og fá fólkið til að mæta í herlegheitin. Það tókst að sjálfsögðu.

Ég stóð hvað fastastur á því að útlendingar ættu að smakka þennan þjóðardrykk Íslendinga og til að sannfæra fólk um að smakka þennan bragðgóða snafs sannaði ég gæði hans með því að hella hverjum skammtinum á fætur öðrum inn fyrir munnvik mín og tilkynnti ánægju mína með ljúfu, en þó ákveðnu brosi. Því næst var pelinn réttur til ætlaðs fórnarlambs, sem í flestum tilvikum sá í gegnum mig og afþakkaði pent.

Í dag vöknuðu menn svo með afar óþægilega verki í höfðum og sumir fengust ekki til að rísa úr rekkju fyrr en seint og um síðir. Jón Kolbeinn kom og eftir að hann hafði gert okkur glaðan dag með tilkynningu um að við hefðum grætt klukkutíma í nótt horfðum við á Næturvaktina. Hann, Björt og Jeppe héldu til síns heima. Ég og Ívar höngsuðum svo hér lengur þar til hann lagði af stað um fjögur leytið.

Þakkir fyrir góða helgi fá allir þeir sem henni deildu með mér.
28. október 2007 klukkan 20:47
Guðmundur Jónsson
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðmundur Jónsson
  • Staður: Seyðisfjörður

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur